Skip to main content

Spurt & Svarað

Svör við algengum spurningum um gólfhitalögn og gólffræsingu

Hversu langan tíma tekur að fræsa?

100 fm og minna verk klárum við oftast á einum degi ef gólf eru slétt og ekkert á gólfum þegar við mætum. Best er að við getum mætt á staðinn og hitt eigendur til að allt sé á hreinu og að áætlun standist.

Er alltaf nauðsynlegt að flota?

Já en oft er nóg að flota bara í raufarnar yfir gólfhitarörin ef gólfin voru slétt og jöfn fyrir , þá er kostnaðurinn lítinn í flotinu, en ef halli eða bungur eru á gólfum er vissara að heilflota gólfið.  Gólfin þurfa að vera slétt fyrir gólfefnið.

Er sama hvernirg gólfefni er lagt yfir gólfhitalagnir?

Það eru til parket sem eru merkt að séu ekki fyrir gólfhita svo það er vissara að hafa það í huga. En reglan er að því þykkara gólfefni sem lagt er yfir hitann því meiri einagrun sem er ekki betra.

Sjáið þið um að teikna á gólfin?

Já við teiknum á gólfin og sköffum rörin og leggjum sé þess er óskað.

Hversu djúpar eru raufarnar?

Við fræsum 20-22 mm djúpar raufar fyrir 16 mm sver rör. Fyrstu 2 laggnir meðfram útveggjum eru með 10 cm millibili og síðan er ca 15 cm á milli röra.

Sjáið þið um að tengja gólfhitann?

Ef þú ert ekki með pípara á þinum snærum erum við í samstarfi við meistara í pípulögnum sem sæi um að setja upp og tengja kistuna og ef viðskiptavinurinn vill ráðleggur hann við  efnisval og tegund.

Ef viðskiptavinurinn vill láta ganga frá þessum málum kemur píparinn með okkur áður en tilboð er gert og áætlar kostnaðinn miðað við aðstæður og stærð verks.

Eru gólfhitakistur og stýringar dýrar?

Búnaður í þessu fer eftir stærð rýmis, ef  t.d. aðeins er  verið er að setja gólfhita í forstofu er algengt að tekið sé úr ofnalöggninni og þá virkar þetta með ofnakrana og ekki þarf að kaup sérstaka dælu.  En þegar verið er að setja í heila íbúð eða stærri rými þarf tengikistu, hringrásardælu og síðan eru tölvustýringar val sem notast þá við þráðlaus termostat í hverju herbergi.

Verðdæmi: ( Skráð feb 2024 ) ::::

Kemur mikið ryk þegar fræst er?

Nei nánast ekkert ryk, við notum stórar ryksugur sem sjúga gólfefnið jafn óðum út úr rýminu.